Skólagjöld
Skólagjöld á vorönn 2012
Verð fyrir byrjendur og framhaldsnemendur er kr. 58.300
Verð fyrir Listhópa er kr. 65.100
Hæt er að skipta greiðslum í þrennt án kostnaðar.
Ganga þarf frá skólagjöldum við innritun.
Skólagjöld eru ekki endurgreidd eftir annan tíma.
Athugið að selt er inn á nemendasýningar.
Við minnum á að flest sveitarfélög styrkja unga bæjarbúa til náms hjá Sönglist
Hægt er að sækja um styrki hjá:
Reykjavíkurborg *
Sönglist er aðili að frístundakortinu og er hægt að nálgast allar upplýsingar um það á vefnum www.itr.is Foreldrar þurfa að fara inn á www.reykjavik.is til að staðfesta notkun hjá Sönglist.
Seltjarnarnes *
Hægt er að sækja um tómstundastyrk
til Seltjarnarnesbæjar
Umsóknum skal skila í afgreiðslu á Bæjarskrifstofunum 1. hæð, í lok hvers tímabils,
í síðasta lagi 31. desember, 31. maí, 31. ágúst.
Styrkir eru greiddir inn á reikning forráðamanns í janúar, júní og september.
Mossfellsbær*
Hægt að nota frístundaávísanir Mosfellsbæjar hjá okkur.
Kópavogur *
Farið er með greiðslukvittun fyrir skólagjöldum á Bæjarskrifstofur Kópavogs.
Garðabær *
Farið er með greiðslukvittun fyrir skólagjöldum á Bæjarskrifstofur Garðabæjar.
Hafnarfjarðarbær *
Farið er inn á íbúagáttina á vef Hafnarfjarðarbæjar og styrknum ávísað á Sönglist. Þetta er gert annarlega þ.e. bæði á haustönn og vorönn.
Önnur sveitafélög
Við hvetjum forráðamenn nemenda sem koma frá öðrum sveitarfélögum að kynna sér fyrirkomulagið í sinni heimabyggð.
* Ofangreindar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar hjá viðkomandi Sveitarfélögum.
|