Margrét Grétarsdóttir
Margrét Grétarsdóttir lærði söng hjá Elínu Ósk Óskarsdóttur við Söngskólann í Reykjavík og í framhaldi af því sótti hún einkatíma hjá henni. Hún stundaði nám um tíma hjá Franco Castellana á Ítalíu og hefur auk þess sótt námskeið, m.a. hjá Galínu Pisarenko, Anton Steincruber og Cathrine Sadolin.
Árið 2008 lauk hún 1. árs diplomanámi hjá Complete Vocal Institute.
Í lok árs 2007 vann hún önnur verðlaun í söngvarakeppninni “Barry Alexander International Vocal Competition”.
Margrét stofnaði tríóið Sopranos árið 2004 ásamt Hörn Hrafnsdóttur og Svönu Berglindi Karlsdóttur. Þær stöllur hafa haldið fjöl marga tónleika og skemmt landsmönnum bæði innanlands sem utan við margskonar tækifæri.
Fyrir utan sönginn hefur hún unnið með börnum til margra ára bæði kennt sund og íþróttir, og samið námskeið fyrir unglinga þar sem áhersla er lögð á sjálfstyrkingu.
|