Kristbjörg Kari Sólmundsdóttir
Kristbjörg Kari Sólmundsdóttir - söngkennari hjá Sönglist.
Kristbjörg Kari lauk stúdentsprófi frá MR árið 1993 og 8. stigi í klassískum söng frá Söngskóla Reykjavíkur árið 1996. Hún nam óperusöng hjá prófessor Sebastian Vittucci í Vínarborg 1997-1998 og lauk B.Ed prófi vorið 2009 frá HÍ í grunnskólakennarafræðum með íslensku sem aðalkjörsvið.
Kristbjörg Kari hóf söngferil sinn níu ára gömul, með kór Öldutúnsskóla undir stjórn Egils Friðleifssonar og ferðaðist með kórnum til Ástralíu, Hong Kong og Thailands. Hún söng með óperukórnum um skeið og hefur víða komið fram sem söngkona á tónleikum sem og sjónvarps- og útvarpsmiðlum og sungið flesta tónlistarstíla m.a. jazz, klassík, þjóðlög, popp, rokk o.fl.
Kristbjörg Kari hefur víðtæka reynslu afeinsöng, laga- og textasmíðum, hljómsveitastarfi, kórsöng, plötuútgáfu, tónmenntakennslu, kórstjórn, sjónvarpsþáttarstjórnun, dagskrárgerð og söngkennslu barna og unglinga.
Kristbjörg Kari býr í Hafnarfirði ásamt eiginmanni og syni.
|