Guðfinna Rúnarsdóttir

Guðfinna er fædd og uppalin á Akranesi. Hún laukstúdentsprófi 1984 frá Fjölbrautaskóla Vesturlands en dvaldi sem skiptinemi í Kaliforniu í eitt ár (80-81).

Hún útskrifaðist sem leikari frá The Arts Educational Schools í London eftir þriggja ára nám þar 1989.

Guðfinna starfaði um eins árs skeið hjá leiklistardeild Rúv og sá á sama tíma um barnatíma á rás 1.
Hún hefur leikið í all mörgum útvarpsleikritum og var umsjónarmaður Stundarinnar okkar “96-“97.
Guðfinna hefur einnig leikið í tveimur áramótaskaupum, ýmsum grínþáttum, Fruntalegu kerlinguna í jóladagatali sjónvarpsins “91 og öðru sjónvarpsefni.

Hún hefur haldið þó nokkur leiklistar- og talsetningarnámskeið fyrir börn og fullorðna.

Hún hefur frá því haustið “97, unnið bæði í lausamennsku og sem launþegi, hjá Stúdíó Sýrlandi, m.a. við talsetningar, leikstjórn talsetninga og auglýsinga, þýðingar á teiknimyndum, námskeiðshald fyrir áhugafólk um talsetningar og gert upptökuáætlanir.

Guðfinna opnaði eigin skrifstofu í lok nóvember 2006 og fæst nú við þýðingar, talsetningar, textaskrif og námskeiðshald í leiklist, upplestri og framsögn.


 


S�nglist - Borgarleikh�sinu - Listabraut 3 - 103 Reykjav�k - S�mi 590 8838 - songlist@borgarleikhus.is - www.songlist.is