Edda Austmann

Edda Austmann lauk BMus. gráðu og söngkennaraprófi frá Royal Academy of Music í London og MMus. gráðu frá óperuháskólanum, Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow.

Edda var við Zürich óperuna í eitt ár og hefur stigið á svið víðar í Evrópu. Hún syngur nú með kammerkór Bústaðakirkju og Seljakirkju.

Edda kenndi í söng og leiklistarskólanum Future Faces og Genesis Theatre School í London en hóf kennslu hjá Sönglist haustið 2007. Hún stýrir einnig kór Snælandsskóla frá haustinu 2008.

Edda lærði dans í Danslistarskóla JSB og nam Alexandertækni, sviðhreyfingu og leiklist sem hluti af náminu í Bretlandi.


 

 

 

 

S�nglist - Borgarleikh�sinu - Listabraut 3 - 103 Reykjav�k - S�mi 590 8838 - songlist@borgarleikhus.is - www.songlist.is